Hélt ég yrði ofurstrumpur!Hafdís Gerður Gísladóttir
Gleðilega PáskaHafdís Gerður Gísladóttir
Fékk málsháttinn Kapallin geldur þá knapinn er reiður. Sá ekki alveg samhengið milli sjónvarpskapla og knapa en Þormar benti mér á að kapall væri meri. Aha, kaplamjólk!Mamma fékk málsháttin að sjaldan veldur einn þá tveir deila og notaði tækifærið og minnti okkur á að hún hefði ALLTAF rétt fyrir sér.
Fór í gær á Skagaströnd til að sækja tónleika með Ellen Kristjáns og hennar ektamaka. Tónleikarnir voru í kirkjunni og haldið ekki að presturinn hafi bara stigið fram og faðmað mig innilega þegar ég kom í kirkjunna. En það er gamli vinur minn Fjölnir Ásbjörns sem þjónar því prestakalli og hef ég ekki séð hann í ár og aldir þó ég vissi reyndar af honum þarna á ströndinni.
Tónleikarnir voru yndislegir og skemmtilega heimilislegir. Ellen sagði sögur milli laga af því þegar hún og Kristján bróðir hennar (KK) voru í sveit þarna í nágrenninu sem börn.
gleði og meiri gleðiHafdís Gerður Gísladóttir
Já þrátt fyrir að konan sé húsnæðislaus og atvinnulaus hefur hún ekki bugast. Algerlega fyrirvaralaus (eða svona næstum því) lokun á Hvítárbakka setti nú áætlanir mínar úr skorðum. Var alveg nýbúin að selja íbúðina mína, þar sem ég ætlaði nú að dvelja meira og minna í Borgarfirðinum næstu mánuði. Þannig nú sef ég í herbergi Jenný Rebekku systurdóttur minnar. he he og hún sefur upp í hjá foreldrum sínum og vonar innst í hjarta sínu að ég muni vera hjá þeim fram að fermingu.Ég er reyndar ekki atvinnulaus lengur, er búin að ráða mig á minn gamla vinnustað í Árbænum og getið hvað?? sem unglingaráðgjafi. Ég byrja um mánaðarmótin næstu og er strax farin að kvíða þessu 8 til 16 lífi. en það venst (vont en það venst). Síðan er konan að skima eftir íbúð þessa dagana sem gengur bara þokkalega. Það er ekki vandamál að kaupa held ég þegar eigendur verða orðnir á barmi örvæntingar með að selja. Búnir að kaupa aðra. Þetta er nú meira bullið þessi fasteignamarkaður. Salan á íbuðinni minni væri nú efni í góða sögu en ég hef engan húmor fyrir því veseni enn. Það kemur eftir nokkra mánuði en Guði sé lof ! hún seldist.
Í síðustu viku hitti ég svo hvorki meira né minna en þrjá vinkonuhópa mína. Spurning um að dreifa félagslífinu aðeins. Húsmæðraorlofið "sem var alger snilld". Síðan á fimmtudag kvöddum við húnvetningarnir hana Sollu okkar sem er að fara aftur til San Francisko. Ha afhverju kannski VEÐRIÐ?! Og á föstudagskveld voru það Murópíur, sem eiga það sameiginlegt að hafa unnið á sambýlinu Mururima á sama tíma. Það eru snilldarpíur. Við höfum ekki hist saman í tvö ár og það er alltof langur tími. Reyndar hafa hittingar okkar dregið dilk á eftir sér, ein er nú gift kona sem rekja til mikils gleðskapar okkar. Þannig það er ekki án áhættu sem ég skellti mér í gleðskapinn en er enn ógift.
Andið léttar.
Ég veit ekki hvort ég muni hitta jafnmarga í þessari viku en mun bregða undir mig betri fætinum og fara til Bretlands, nánar tiltekið Glasgow. And shop until I drop!
Ég er búin að finna passan þannig mér er ekkert að vanbúnaði.
Hins vegar er ég í hræðilegri klemmu. Þannig er mál með vexti að ég stal myndinni sem er í síðustu færslu af heimasíðu vinkonu minnar hennar Ingu Heiðu snilla. Nú vill hún fá slóðina á síðuna mína og mun komast að þessum hræðilega gjörningi minum í framhaldinu. Ég óttast mjög um afleiðingar þess þannig kannski kem ég ekkert aftur heim frá Glasgow!
HúsmæðraorlofHafdís Gerður Gísladóttir
Afar skemmtilegri helgi er að ljúka í þessu. Hið árlega húsmæðraorlof glæsipía (Friðlína) var haldið í bænum í ár. Í fyrra vorum við í nafla alheimsins nebblilega Egilsstöðum. Við byrjuðum á því að fara út að borða á föstudeginum sem var afskaplega gaman og mikið kjaftað og hlegið. Síðan var stíf dagskrá sem Reykjarvíkurnefndin hafði skipulagt. Mætt í Kópavoginn í morgunmat og svo var farið á rútu nei ekki rútu heldur langferðabifreið!! sem Lilja ofurkona hafði komið á frá Sauðárkrók. Farið var í útsýnisferð og vettvangsferð um borgina. Okkur tókst að láta afhomma afmælisbarnið í hópnum fyrir aðeins 60 kr. og er allt annað að sjá til hennar núna. Eftir nammigóðan mat um kvöldið og veigar var farið á Skagfirðingaball á Players. Þar skemmtu sumir sér meira en aðrir he he. Konan var hins vegar komin snemma í rúmið, fyrir 3 arfaslappt!!. Svo var brunch hjá hinni verðandi tvíburamömmu (sem fór ekki á ballið why!) sem kom manni alveg á réttan kjöl í dag. Skagfirðingarnir lögðu svo í hann á rútunni og yndislegri helgi var lokið.
En hreint út sagt æðisleg helgi, mikið hlegið og hlegið. 
Er svo að fara hitta Murópíur í vikunni og áttaði mig á því að síðast hittumst við árið 2005. Er eðlilegt hvað tímin er fljótur að líða.
TrúinHafdís Gerður Gísladóttir
LeikhúsferðHafdís Gerður Gísladóttir

Fór um síðustu helgi á þetta leikrit og skemmti mér mjög vel. Myndi mæla með því en því miður var þetta næstsíðasta sýning. Það var líka svolítið fyndið að koma í Austurbæ. Langt síðan síðast, held ég hafi ekki komið þarna inn síðan ég fór á Tinu Turner myndina fyrir þónokkrum árum síðan. Í svipuðum fíling fórum við Tommi á kofa Tómasar frænda og það er svoooo langt síðan ég hef komið þangað. Var þó hér á árum áður einn af fastagestunum.
Næstu menningarskref eru að fjölmenna á Kommúnuna og ég hlakka svo til. TIlsammans er mín uppáhaldsmynd og þeir sem ekki hafa séð hana ættu að gera það hið snarasta. Hún er hreinlega mannbætandi.
uhumm!..Hafdís Gerður Gísladóttir
ÖrlöginHafdís Gerður Gísladóttir
Eftir mikla hugræna atferlismeðferð sem ég hef beitt á sjálfa mig undanfarið. og þeir sem þekkja mig vel vita að undir þessu fagra skinni leynist mikið frestunaráráttuflagð. Þá var konan búin að ákveða að í dag fimmtudaginn 7. feb yrði farið í World Class fjárfest í korti og rassin hristur eitthvað.En í morgun sýndist mér sem hönd Guðs hefði ákveðið að skerast í leikinn. ÓFÆRÐ og óveður.
Spurningin er bara hvernig á ég að taka þessu teikni. Lleggjast í rúmið aftur eða á ég að líta svo á að forlögin séu að reyna á festu mína...!!!?
framhald síðar........................................
hverfula veröldHafdís Gerður Gísladóttir
Úff, hlutirnir að gerast þessa dagana. Fylgdist spennt með mótmælum í ráðhúsinu í hádeginu í dag. Ég er nú ekki sátt við þessi meirihlutaskipti en hverju ræð ég aumur kjósandi!!! Greinilega engu.
Jenný Rebekka var nú pínu hneyksluð á þessu fullorðna fólki. Þegar hún fór með leikskólanum í ráðhúsið hegðuðu börnin sér óaðfinnanlega og stunduðu engin frammíköll. Hún spottaði þó Erlu frænku sína út í öllum fjöldanum. Ansi nösk stúlkan.
Síðan er látinn einn mesti hönk Hollywodd. Heath Ledger, blessuð sé minning hans. Er nýbúin að fara á myndina sem er byggð (eða ekki byggð) á ævi Bobs Dylan þar sem hann fer með eitt hlutverkið og gerði það vel. Mér fannst hann svooo flottur og með þessa dásamlegu rödd. Synd og skömm.
Aðalfréttin sem þó fellur óneitanlega í skuggan af framantöldu er sú að skvísan er komin með fulla sjón. SKellti mér í Laser aðgerð í gær og núna er lífið gjörbreytt hjá mér. Engin gleraugu framar og engar linsur. Stórkostlegt..
Í lífsins ólgusjóHafdís Gerður Gísladóttir
Tvær vikur búnar af þessu blessaða ári og ég, alltaf full af gorgeir og jólarómantík þykist engin heit þurfa að strengja né markmið að setja allt sé bara eins og það á að vera. En tek svo þessar tvær vikur í mikla dýfu, um hver sé tilgangurinn með þessu öllu saman. Hins vegar get ég sagt ykkur að ég setti mér bara nokkuð skýr markmið fyrir þetta ár. Sem ég held fyrir mig svona til að byrja með sumt er nú persónulegra en annað.
Árið byjaði nú með andláti í fjölskyldunni og fór jarðaför Hilmars fram á laugardaginn var, á Blönduósi. Við fórum saman norður ég, Erla, GUmmi og Jenný í stað þess að keyra í halarófu á eftir hvort öðru. En ég hugsaði líka um það hvað það er mikilvægt í fjölskyldum að vera saman og gera eitthvað saman. Oft verður það í dagsins önn að maður rétt hittir á fólk en gefur sér kannski ekki nógan tíma.
Síðan fór ég í dag og heilsaði upp á ungan mann sem er nýkomin í heiminn. Son hjónaleysana Guðrúnar og Lofts, ansi myndarlegur snáði.
Ég missti algerlega af meðgöngu Guðrúnar, svona getur tíminn bara liðið beint fyrir framan nefið á manni.
Talandi um að tíminn líði þá skrapp ég í afmæliskaffi til hennar Ástu. Til hamingu með afmælið Ásta mín.
Mér finnst aldur minn á þessu ári vera svona helst til fullorðinsleg tala! Ekki að það sé vont að eldast, heldur voru foreldrar mínir á þessum aldri búnir að eignast fjögur börn stofna fyrirtæki, byggja sér einbýlishús og reyndar skilja líka. En ég er bara að leika mér ennþá. Svo var Erla systir með einhverja aldurskomplexa um helgina þannig ég hugsaði bara OMG.
Það stefnir í að tölvutengingin í sveitinni sé bara orðin þokkaleg. Tölvubóndinn mætti í byrjun árs og lagaði allt sem þurfti að laga. Vonandi.