hverfula veröldHafdís Gerður Gísladóttir

Úff, hlutirnir að gerast þessa dagana. Fylgdist spennt með mótmælum í ráðhúsinu í hádeginu í dag. Ég er nú ekki sátt við þessi meirihlutaskipti en hverju ræð ég aumur kjósandi!!! Greinilega engu.
Jenný Rebekka var nú pínu hneyksluð á þessu fullorðna fólki. Þegar hún fór með leikskólanum í ráðhúsið hegðuðu börnin sér óaðfinnanlega og stunduðu engin frammíköll. Hún spottaði þó Erlu frænku sína út í öllum fjöldanum. Ansi nösk stúlkan.
Síðan er látinn einn mesti hönk Hollywodd. Heath Ledger, blessuð sé minning hans. Er nýbúin að fara á myndina sem er byggð (eða ekki byggð) á ævi Bobs Dylan þar sem hann fer með eitt hlutverkið og gerði það vel.  Mér fannst hann svooo flottur og með þessa dásamlegu rödd.  Synd og skömm.

Aðalfréttin sem þó fellur óneitanlega í skuggan af framantöldu er sú að skvísan er komin með fulla sjón. SKellti mér í Laser aðgerð í gær og núna er lífið gjörbreytt hjá mér. Engin gleraugu framar og engar linsur. Stórkostlegt..

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Klukkan